Episodes

Thursday Apr 08, 2021
Bannað að dæma - Er lífið tilgangslaust? TRIGGER WARNING
Thursday Apr 08, 2021
Thursday Apr 08, 2021
14. þáttur af B.A.D.
Já kæru vinir, þessi þáttur var í þyngri kantinum, það upplifa allir hæðir og lægðir í þessu og lægðin var því miður ansi mikil þessa dagana hjá Heiddu okkar, lífið er misjafnt og fólk fær hinar ýmsu hugsanir stundum. Þegar líðan er svona þá er langbest að tala um hlutina, það er ástæðan fyrir því að við erum með þetta podcast. Þetta spjall var basicly spjallið sem við ætluðum að eiga bara inn í stofu eða á rúntinum með hvort öðru, en ákvaðum að taka þetta allt saman bara upp. Takk fyrir að hlusta <3
Uppkeyrslan og Hróshornið var á sínum stað, þeir liðir eru í boði
www.befiticeland.is 15% afsláttur á kóðanum: "haustfjord" hjá þessum báðum fyrirtækjum
& www.ohanastore.is afsláttarkóðinn þar er (BAD) 15% off
þátturinn er einnig í boði www.slippfelagid.is
svo er dekkjarvertíðin að hefjast, kíktu upp í www.nesdekk.is Akureyri
Snillingarnir þar græja þetta hratt og örugglega og ef þú gefur þeim kóðann: PSA þá færð þú 20% afslátt!
Takk allir sem hlusta og takk styrktaraðilar.

Thursday Apr 01, 2021
Bannað að dæma - Transfólk með Alexander Laufdal
Thursday Apr 01, 2021
Thursday Apr 01, 2021
Þáttur 13 af B.A.D.
Alexander Laufdal kom í spjall og útskýrði allt fyrir okkur í sambandi við það að vera transmaður og hvernig hans ferli var. Fórum yfir fordóma, óþarfa spurningar, kynleiðréttingu, neyslu og hvað lífið getur verið ótrúlega misjafnt. Alexander er ótrúlega skemmtilegur gaur og það var magnað að spjalla við hann!
Hróshornið og uppkeyrslan á sínum stað en þau eru í boði www.befiticeland.is og www.braverslun.is afsláttarkóði (haustfjord) ásamt www.ohanastore.is (afsláttarkóði (bad)
Þátturinn er einnig í boði www.xmist.is - www.lemon.is og www.slippfelagið.is
www.kaffið.is dreifir þættinum og er hann tekinn upp í www.psa.is
TAKK!

Sunday Mar 28, 2021
Bannað að dæma - Djammið með Dabba Rún
Sunday Mar 28, 2021
Sunday Mar 28, 2021
12. þáttur af B.A.D.
Hver saknar ekki gömlu tímana?
1929 - Sjallinn - Madhouse - Club 13 - Dynheimar - Sveitaböllin og svo margt margt fleira! Dabbi Rún þefaði upp að við værum að spjalla um gömlu tímana og ruddist inn í stúdíóið og dældi á okkur sögum síðan í denn, enda enginn fróðari og reynslumeiri og Dabbi í þessum málum.
Uppkeyrslan á sínum stað í boði https://braverslun.com/ og https://befiticeland.is/ þar er afsláttarkóðinn: (haustfjord) Hróshornið þar á eftir í boði https://ohanastore.is/ afsláttarkóðinn þar er: (BAD)
Þátturinn er einnig í boði https://www.lemon.is og https://xmist.is/
Það er www.kaffið.is sem dreifir þættinum og er hann tekinn upp í www.psa.is
Takk fyrir okkur!

Sunday Mar 21, 2021
Bannað að dæma - Herra Hnetusmjör
Sunday Mar 21, 2021
Sunday Mar 21, 2021
11. þáttur af B.A.D!
Þetta var NEGLA!
Herra mætti til okkar í spjall og fór á flug í sambandi við skólakerfið á íslandi, hann vissi alveg um hvað hann var að tala þar, ræddum djammið, tónlistina, drukkið og óþægilegt fólk, hvernig það er að halda sér edrú í kringum bransann og margt fleira! Herra og Huginn eru með podcastið "Félagsmiðstöðin" tjékkið á því!
Uppkeyrslan og Hróshornið að sjálfsögðu á sínum stað, þar fengu Sara kærasta Herra, Björk Óðins og Dóri Ká hrósið.
Þátturinn er tekinn upp í psa.is og er það kaffið.is sem dreifir þættinum!
Kostendur þáttarins eru X-mist - Lemon - Dressman - OhanaStore - Brá og Befit. Takk ótrúlega mikið fyrir okkur <3
Bannað að dæma!

Thursday Mar 18, 2021
Bannað að dæma - Prestar
Thursday Mar 18, 2021
Thursday Mar 18, 2021
10 þáttur af B.A.D.
Sindri og Stefanía kíktu í spjall til okkar og töluðum um allt mögulegt!
Þau eru bæði prestar í Glerárkirkju og ræddum við sorg, gleði, tilfinningar og hvernig fólk tekst á við dauðann, þau eru bæði gífurlega hress og skemmtileg og var ótrúlega gaman að fræðast um líf þeirra, Sindri er tvíkynhneigður og Stefanía samkynhneigð, það hefur ekki truflað neinn innan kirkjunnar, enda á það ekki að gera það.
Hróshornið og uppkeyrslan voru á sínum stað!
Þátturinn er tekinn upp í Podcast Stúdíó Akureyrar: www.psa.is
og er það kaffið.is sem dreifir þættinum.
Dressman - Lemon - X-mist- Brá og Befit eru þau sem standa þétt við bakið á okkur og erum við þeim ævinlega þakklát!
Bannað að dæma

Sunday Mar 14, 2021
Bannað að dæma - Hjáveituaðgerð & Svuntuaðgerð
Sunday Mar 14, 2021
Sunday Mar 14, 2021
Þáttur 9 af B.A.D.
Við tókum framhald af alkahólisma umræðunni og Heiðdís kláraði að fjalla um þau mál , svo nú ætti öllum spurningum að vera svarað. Hinsvegar þá ræddum við hjáveituaðgerðir og svuntuaðgerðir, Heiðdís hefur farið í bæði og svaraði hún öllum þeim spurningum í kringum þessar aðgerðir, við ræddum líka ýmis samasem merki í kringum þessar aðgerðir og neyslu og persónuleikabreytingar.
Uppkeyrslan og hróshornið góða var á sínum stað að sjálfsögðu!
Þessi þáttur er tekinn upp í Podcast Stúdíó Akureyrar og það er kaffið.is sem dreifir þættinum.
Hann er í boði X-mist, Lemon og Brá og Befit!
Takk fyrir okkur.

Thursday Mar 11, 2021
Bannað að dæma - Alkahólismi
Thursday Mar 11, 2021
Thursday Mar 11, 2021
Þáttur 8 af B.A.D.
Þetta var ekki létt umræða, Heiðdís opnaði sig um alla sína neyslu og hennar sjúkdóm, hún opnaði á allt og leyndi ekki neinu, talaði um tímana þegar hún keyrði sig í kaf úr vinnu og streitu og þá voru vímuefnin eina lausnin, það er alls ekki góð blanda, enda endaði Heiðdís í meðferð sem á endanum gerði hana að frábæru manneskjunni sem hún er í dag. Alkahólismi er sjúkdómur sem er gífurlega miskilinn og leynist í hverri fjölskyldu, það er full þörf á að opna á umræðuna.
Þátturinn er tekinn upp í Podcast Stúdíó Akureyrar og kaffið.is dreifir þættinum. Það eru X-mist og Lemon sem kosta þáttinn ásamt Brá og Befit.

Sunday Mar 07, 2021
Bannað að dæma - Lífið með Sólrún Diego
Sunday Mar 07, 2021
Sunday Mar 07, 2021
Þáttur NR 7 af B.A.D.
Ein stærsta samfélagsmiðlaskvís Íslands mætti í settið til okkar og rosalega er Sólrún skemmtileg, hún er ekki vélmenni sem þrífur allann daginn, hún er ekki ferköntuð og vissuði að hún er mannleg eins og við hin? Sólrún er mjög áhugaverður karakter sem hefur gengið í gegnum ýmislegt í lífinu og farið í gegnum ansi stóran pakka af áreiti. Við ræddum sálfræðinga, pressu á manneskjum og hvernig fólk horfir vitlausum augum á náungann án þess að vita neitt.
Uppkeyrslan og Hróshornið voru á sínum stað og voru Lina Birgitta og Ingvi Jón efst á lista þar!
Þátturinn er tekinn upp í Podcast Stúdíó Akureyrar og kaffið.is dreifir þættinum.
Það eru X-mist og Lemon sem kosta þáttinn ásamt Glow up og Höllinni á Ólafsfirði.

Thursday Mar 04, 2021
Bannað að dæma - Votta Jehóva með Andra Friðriks
Thursday Mar 04, 2021
Thursday Mar 04, 2021
ÞÁTTUR 6 AF B.A.D.
Það var ansi áhugavert að heyra skoðanir Andra á lífinu og hvernig hann lítur á það, Andri er Votti og fylgir öllum þeim gildum sem ríkja í Votta Jehóva.
Andri er einn skemmtilegasti karakter sem við þekkjum og ótrúlega góð sál. Hann hefur mismunandi skoðanir á ýmsum málefnum og ræddum við um það allt í þættinum. Farið var yfir samkynhneigð, blóðgjöf, jól og afmæli og sagði okkur frá paradís sem hann bíður mjög spenntur eftir að komast í.
Við fórum að sjálfsögðu í uppkeyrsluna og hróshornið og fóru ansi mörg hrós út í kosmósið, sem er fallegt.
Kæru vinir, spennið beltinn, hér kemur Andri Jehóva!
Þátturinn er í boði Lemon og X-mist, Glow up og Höllinn Ólafsfirði!
Það er svo kaffið.is sem dreifir þættinum og er hann tekinn upp í Podcast Stúdíó Akureyrar.

Sunday Feb 28, 2021
Bannað að dæma - Geðveik með Ingibjörgu Eyfjörð
Sunday Feb 28, 2021
Sunday Feb 28, 2021
5 þáttur af BAD
Þessi var heldur betur átakanlegur en fræðandi einnig.
Ingibjörg Eyfjörð segir okkur sögu sína og af hverju hún er eins og hún er, áföllinn, geðdeild, óheilbrigð sambönd og að þora að fara sem lengst út úr boxinu og vera hún sjálf, Ingibjörg er tveggja barna móðir úr mývatnssveit sem lætur ekkert stoppa sig og henni er drullusama hvað þér finnst, Ingibjörg málar sig og klæðir ansi áberandi og er ekki eins og flestir.
Djöfull er Ingibjörg samt mögnuð og skemmtileg!
Það er kaffið.is sem dreifir þættinum og er hann tekinn upp í PSA.is
X-mist og Lemon eru kostendur þáttarins og þökkum við þeim kærlega fyrir það!
Bannað að dæma!

